Flautuleikur í Víkingaheimum
17.11.2011Laugardaginn 19. Nóvember kl. 14.45 verða haldnir skemmtilegir tónleikar í Víkingaheimum. Þrír flautuleikarar munu leika tónlist frá 17. og 18. öld ásamt þjóðlögum frá ýmsum Evrópulöndum.
Forsprakkinn í hópnum er Katharina Koch – Boehmert tónlistarkennari sem flutti til landsins frá Þýskalandi fyrir þremur árum og leikur hún á tenór- og bassa blokkflautur. Níu ára sonur hennar Florian Böhmert leikur á sópran- og alt blokkflautur ásamt trommum, þauð mæðgin búa í Njarðvík. Þriðji flautuleikarinn í hópnum er Helga Aðalheiður Jónsdóttir kennari við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og leikur hún á sópran-, tenór- og bassa blokkflautur. Hljómurinn í Víkingaheimum er einstakur þannig að þetta verða örugglega mjög áhugaverðir tónleikar.
Aðgangseyrir inn í Víkingaheima er kr. 1.000 fyrir fullorðna en ókeypis fyrir börn og eru áhugasamir því hvattir til að nota tækifærið og skoða sýningarnar ásamt því að njóta tónleikanna.



