Víkingaheimar Opna í Reykjanesbæ
17.06.2009Víkingaheimar í Reykjanesbæ voru formlega opnaðir í dag 17. júní 2009. Til þeirra teljast sýningarskáli Íslendings sem Guðmundur Jónsson arkitekt hannaði og sýningin Víkingar Norður-Atlantshafsins sem sett er upp í samvinnu við Smithsonian-stofnunina í Bandaríkjunum.
Meðal sýningargripa eru vopn víkinga sem grafin voru upp í Svíþjóð og eru talin vera frá því í kringum árið 800. Vopnin eru fengin að láni frá Þjóðminjasafni Svíþjóðar. Einnig eru í sýningunni aðrir munir, svo sem grafsteinar frá svipuðum tíma og koma munirnir víða að m.a. frá Skandinavíu löndunum, Englandi, Færeyjum og Grænlandi.
Víkingaheimar verða opnir öllum, alla daga frá 11:00 til 18:00 og allar upplýsingar er hægt að fá á heimasíðunni Víkingaheimar.is
| mbl.is | 18.6.2009 | 08:07
Til baka


