Íslendingur í höfn þrátt fyrir efnahagsstorm
23.02.2009
| Hátíðarstund þegar lyklar að skála voru afhentir í dag |
Steinþór Jónsson, framkvæmdastjóri Íslendings, sagði það mikinn áfanga að hafa náð að koma Íslendingi í sína heimahöfn áður en efnhagsstormurinn skall á en verkinu var að mestu lokið í haust.
Íslendingur kom til Reykjanesbæjar árið 2002 og hefur mikill kraftur fylgt allri uppbyggingu á Fitjunum. Steinþór bætti við að húsið væri reist nokkurn veginn á upprunulegri kostnaðaráætlun sem er einsdæmi í dag. "Það litla sem fór umfram var vegna breytinga sem við fórum fram á. Ein þeirra breytinga var þegar við ákváðum að sleppa gólfdúk og fengum í staðinn möl úr landnámsfjörunni við Höfn í Hornafirði sem við límdum síðan niður sem steinteppi. Það er varla meira við hæfi í þessu húsi en að ganga á fjöru Ingólfs Arnarsonar. Þetta er samstillt verkefni verktaka og verkkaupa og ég er Spöng afar þakklátur fyrir þetta samstarf" sagði Steinþór.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri í Reykjanesbæ, þakkaði Guðmundi Jónssyni arkitekt sérstaklega fyrir að hafa breytt skálanum úr skála í listaverk á teikniborðinu. " Guðmundur er frábær arkitekt og þetta hús er til vitnis um það og mun vera til framtíðar" sagði Árni.
Áætlað er að opna Víkingaheima í maí á þessu ári. Markmiðið er að byggja upp einn af fjölsóttustu ferðamannastaði landsins og skapa þarna fjölda stöðugilda.
Þessa má geta að á sunnudagskvöld er á dagskrá Stöðvar 2 þátturinn Sjálfstætt fólk en viðfangsefni þáttarins er skipstjórinn Gunnar Marel Eggertsson, sigling hans til Ameríku og uppbygging Íslendings á Fitjum. Þá mun þjóðinni gefast tækifæri til að líta inn í Víkingaheima.
Til baka



