Örlög guðanna
Sýning um norræna goðafræði og goðsögur. Gesturinn er leiddur í gegnum þennan forna hugmyndaheim og goð og goðheimar birtast ljóslifandi á myndrænan og nýstárlegan hátt þar sem myndlist, frásögn og tónlist fléttast saman í eina heild. Sýningin er samin og unnin af viðurkenndum íslenskum samtímalistamönnum og norrænufræðingum sem þarna leiða saman hesta sína til að skapa glæsilegt og nútímalegt listaverk um fornan menningararf.
Sýningin Örlög guðanna fjallar um norræna goðafræði. Þarna eru raktar ýmsar þekktar sögur af norrænu goðunum með aðstoð einstakra leikmynda eftir listakonuna Kristínu Rögnu Gunnarsdóttur, tónlist eftir Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoða ásamt hljóðleiðsögn á fjórum tungumálum sem Ingunn Ásdísardóttir þjóðfræðingur hefur tekið saman.
Víkingar Norður-Atlantshafsins
Sýning um siglingar og landnám norrænna manna og þátt þeirra í landafundum Norður-Ameríku. Sýningin var unnin í samstarfi við Smithsonian stofnunina í Bandaríkjunum.
Víkingaskipið Íslendingur
Skipið er nákvæm eftirgerð af Gaukstaða skipinu, níundu aldar víkingaskipi og sigldi árið 2000 yfir Atlantshafið til að minnast ferðar Leifs Eiríkssonar til Nýja heimsins þúsund árum fyrr.
Landnám á Íslandi
Merkar fornleifar af Suðurnesjum. Minjar um elstu byggð á Reykjanesi, nánar tiltekið frá Vogi í Höfnum og Hafurbjarnarstöðum.
Söguslóðir á Íslandi
Kynning á helstu söguslóðum Íslands unnin í samstarfi við Samtök um sögutengda ferðaþjónustu. Rúmlega 30 staðir, söfn, sýningar, minjar, hátíðir, mannvirki og slóðir ákveðinna sagna er kynnt hér.
Póstlisti Víkingaheima
Skráðu þig á póstlistann okkar til að fá nýjustu fréttir og tilkynningar frá okkur
Tengdir aðilar í ferðaþjónustu á Suðurnesjum



